Síđan lifir enn!!! úff 3 mánuđir frá seinasta bloggi
Allt mjög gott að frétta af mér, er komin yfir á yngstu deildina á Leikskólanum, þannig að ég og Embla mín fengum að vera saman á deild í ca mánuð og svo 2 júní komu svo yngri börn inn og þau “eldri” skipta um deild...lítið svo sem í fréttum nema að ég ætla vinna næsta vetur á Leikskólanum og stefnan er svo sett á skóla haustið 2009, langar að læra ljósmyndun, veit ekki alveg hvar, en ég er að skoða málin....
· Fór í “Single”partý með Fjólu 1 mars
· Árshátíð leikskólanna var mjög fín, byrjað var að fara í fyrri partý til Mæju og þaðan á Broadway og veislustjóri var Björgvin Franz og var ekkert smá skemmtilegur, lék nú nokkra góða einstaklinga og salurinn tók vel undir, lék nú Geir Ólafs ekkert smá vel, Diddú söng nokkur lög og hljómsveitn Spútnik var með ball:D Kíktum svo nokkrar einn rúnt í bæinn á Nonnabita og B5 til hans Kidda og svo heim.
· Kíkti með stelpunum hjá Póstinum á Fótboltamót þar sem strákarnir hjá Póstinum voru að keppa
· Fór í 30 ára afmæli til Gaua, myndir á leiðinni
· Við frænkurnar hittumst og kíktum á djammið saman, höfum nú aldrei gert það áður og var það bara mjög gama
· Við á Leikskólun fórum í Óvissuferð og var byrjað í Öskuhlíðinni, þar var okkur skipt í hópa og áttum við að kveikj eld á pönnu og máttum “BARA” nota 4 eldspýtur og byrjuðum að finna allskonar gras, spýtur og strá og gekk það bara ágætlega og enduðum svo á því að poppa
dag
· Fór með Mömmu, Emblu frænku og Frikka frænda á Eurobandið í Smáralind og Emblu fannst það svo gaman, enda mikill aðdáendi, fékk áritaðan disk og plakat frá þeim...svo um kvöldið fór ég og Elísabet á ball með þeim á Players.
· Eurovision var nú heldur betur spennandi, var samt ekki sátt með úrslitin lagið var ömurlegt sem vann.
Jóhanna systir og Óli voru með partý og Elísabet og Rósa komu með mér og svo fórum við öll á Pál Óskar á Nasa....
· Sunnudaginn seinasta (8 júní) vorum við mæðgurnar ásamt Emblu og Frikka á leið í hádegismat til Lindu frænku og vorum að keyra Sæbrautina rétt hjá Skútuvogi þegar bíll kemur og ætlaði að beyja en skall þá á okkur og skrapaði svo bílinn ( smá ljót rispa á aftur brettið og smá dæld) og keyrði svo bara í burtu, sáum nú að þetta var “mjög” gamall maður, þar sem hann virðist ekki hafa fattað að hafa keyrt á okkur, en sem betur fer náðum við númerinu...
Loksins BLOGG....
Hef því miður ekki verið að sinna þessu blessaða bloggi neitt undanfarið...”innri” síðan er búin að vera svo leiðinleg að ég hef ekki getað sett myndir inn og þannig að ég hef lítið getað bloggað! En hún er e-ð lagast svo ég ákvað að koma með smá fréttir af mér!
Allt gott að frétta af mér
fyrir utan “vírus” hálsbólgu sem ég fékk “aftur” þriðjudaginn fyrir 2 vikum og var ég frá vinnu restina af vikunni...missti svo röddina alveg seinustu helgi og var það nú frekar erfitt að vera í vinnu hás...en fór til læknis seinasta mánudag og þá fékk ég aftur þetta “ þú ert með vírus hálsbólgu ekkert hægt að gera” en pantaði svo tíma hjá heimilislækninum mínum og þá var ég með sýkingu í ennis-og nefholum og eitlabólgu og fékk loks sýklalyf við þessu
...úff hvað ég er komin með mikið ógeð á þessu, ekki alveg að nenna þessu....
Árshátíð Póstsins var haldin 23 feb. í nýju Laugardagshöllinni og var ekkert smá gaman, skemmti mér svo ótrúlega vel enda ekki annað hægt.
Frétti þetta kvöld frá konu sem er búin að mæta á árshátíðir Póstsins seinustu 6-7 árin að þessi væri sú besta enda get ég nú alveg tekið undir það![]()
Dagskrá kvöldsins var mjög góð og maturinn einnig:D
Fram komu:
Laddi sem var veislustjóri
Ávarp Forstjórans
Garðar Thór Cortes
The Post Pack
Páll Óskar hitaði svo upp fyrir ballið
Magni og Á móti sól héldu svo fjörinu á dansgólfinu til ca hálf 3 og þá var haldið í bæinn...fór með Lenu, byrjuðum á Hressó hittum þar Fjólu og fórum með henni á Celtic Cross, kíktum rétt inná Q bar og svo enduðum við eins og alltaf á Hressó
Fór seinasta fimmtudag á Step Up 2 með Birnu og Lenu, vá hvað hún er góð...dansatriðin eru ekkert smá flott
vildi óska að ég væri svona góður dansari og hafði æft dans þegar ég var yngri, hafði svo verið til í að vera í þessum skóla sem myndin gerist í....hæfileika fólk....
Föstudaginn 14 mars er svo Árshátíð Leikskólanna og ætlar mín að fara á hana...ákvað nú á seinustu stundu að fara, fannst nú skemmtiatriðinn ekkert svo góð, Spútnik eru með ball, Diddú syngur og Björgvin Frans er veislustjóri....
Nýjar myndir komnar, loksins![]()
Jólaglögg Póstsins
Áramót ´07 - ´08
Ruby Tusday og Keila með vinnunni
Árshátíð / Afmælihátíð Póstsins
Ţetta blessađa veđur!
Búið að vera stormur og leiðinlegt veður í 2 vikur ca...samt var nú kósý að vera heima í gær og hlusta á þrumurnar og eldingarnar get nú ekki neitað því, leið eins og ég væri úti í útlöndum
En já er nú byrjuð í World Class á fullu með systu og mömmu
fékk æfingarprógramm í gær, pantaði mér tíma hjá einkaþjálfara og fékk prófgramm og ráð hjá honum...svo nú er málið að fara 4-6 sinnum í viku og púla
SKAL og ÆTLA takast það.
Svo er Árshátíð Póstsins 23 feb og er ég að fara á hana, gat nú ekki látið hana fram hjá mér fara, þar sem Páll Óskar og Laddi eru veislustjórar, Garðar Cortes syngur og Á Móti Sól spilar...verður örugglega svaka stuð, hlakka nú til að hitta fólkið aftur...enda komið hálft ár síðan ég hætti, tíminn líður allltoooofff hratt....
Voða lítið annað e-ð í fréttum hjá mér...væri nú gaman að heyra í ykkur![]()
Fyrsta blogg ársins 2008 :)
Allt gott bara að frétta af mér![]()
Alltaf jafn fínt á leikskólanum búin að vinna þar í ca 5 mánuði, úff tíminn líður sko hratt, finnst ég ný byrjuð![]()
15-18 NÓV - Mót í Kotinu ( Föður Hjarta Guðs)
Mótið í Kotinu var mjög fínt, alltaf svo gott að komst “heim” í Kotið, enda líður manni alltaf svo vel þar
búin að koma þangað síðan ég fæddist ...frelsaðist þar þegar ég var 7 ára gömul á barnamóti og var það einstök upplifum fyrir sjö ára barn, man alltaf eftir þessu móti, fékk nú líka tungutal þá.
Ræðumenn mótsins voru hjón frá Kanada sem ferðast um heiminn og vitna og predika orð Guðs, þau komu frá mjög ólíku uppeldi, en höfðu samt bæði upplifað höfnum frá föður sínum og töluðu mikið um það og vitnisburð sinn ( Yfirskrift mótsins var “föður hjarta Guðs” að horfa á Guð sem pabba sinn)
Á mótinu var margt sem ég upplifði sem ég hef hvorki séð né fengið að upplifa áður, , en ég hef fengið tímabil eins og örugglega margir hafa fengið að efast um að Guð / Jesú séu til og það varð meira eftir að ég hætti að mætta á samkomur, biðja og lesa og fór að sækjast meira í djammið og það allt!
Föstudagurinn 30 nóv:
Vorum fyrr um daginn að skreyta og gera allt fínt uppí leikskóla og svo hittumst við svo öll um kvöldið og þá var jólamatur, borðum góðan mat og nokkrir voru með skemmtiatriði, þema kvöldsins var rautt.
Jólaglögg Póstsins var 1 des.
Og var það haldið á Enska Barnum eða ( English Pub) mjög gaman að hitta allt póstliðið aftur, fór með Fjólu og Arndísi og var það nú svaka stuð hjá okkur, hitti nú einnig gömlu deildina mína....svo var kíkt á Hressó með liðinu...
Svo í desember var ég að hjálpa Jóhönnu systir með krakkana , Óli var í vinnuferð og á meðan var ég nú hjá þeim..ekkert smá nice að vera með krökkunum enda sakna maður nú þess að vera ekki eins mikið með þeim....enda var þetta mjög skemmtilegur og góður tími
Jólin:
Aðfangadagur vorum við ég, ma og pa hjá Jóhönnu og co, amma Hanna og afi Steini voru með okkur og var það mjög fínt, svo komu Ósk, Óli og Steini til okkar eftir að pakkarnir voru opnaðir....Jóladag: Fór í jólaboð til ömmu Hönnu og afa Steina og var þar öll fjölskyldan, alltaf svo gaman að hittast svona öll saman, enda er það nú fastur liður á jóladag að hittast öll...
Gamlársdagur: Jóhanna og co komu til okkar, fór svo eftir miðnætti niður Fíló, á grímuball, svaka stuð, neðri salurinn flott skreyttur og góð stemming.
Var svo í mjög góðu jólafríi, næstum því 2 vikur, vann hálfan dag á milli jóla og nýárs og byrjaði svo að vinna 3 jan.....eftir gott frí![]()
Ţétt setinn helgi á baki! og nćsta svipuđ
Föstudaginn: Kíkti á samkomu í Fíló, hitti þar Beggu og Fjólu og fór svo með Söru uppí Grensás ( Ármúlann) og var þar mjög góð stund, komum samt í lokin...svo fór ég með stelpunum...Hönnu, Birnu, Söru, Beggu og Fjólu uppí Kross á lofgjörðar og bænastund, ekkert smá notalegar stundir....
Laugardagur: Jóhanna systir var með smá afmælisboð fyrir ömmurnar og afana og var það ekkert smá fínt, enda svo langt síðan sem við höfum hist öll saman...Um kvöldið fór ég í Laugardagshöllina á Kristilega tónleika og voru þeir mjög góðir, Frikki frændi kom með mér og var svo mikil dúlla, fékk að sitja á sviðinu og fannst það ekkert smá gaman og svo setning kvöldsins hjá honum var “Fanný þessi gaur er alveg eins og Narfi og ég e-ð þetta er Narfi og hann e-ð Narfi, hvað hann að gera uppá sviði” fannst það nú soldið skrítið að sjá hann uppá sviði að syngja ( Narfi er með hann í Brosbörnum gæslunni í skólanum)
Eftir það þá fór ég og Birna heim til Fjólu og þar voru Begga, Högni og Villi og svo kíktum við til Helene Ingu í smá partý...svaka stuð þar...
Sunnudagur: Fór svo á “stuð” samkomu uppí Samhjálp á U.N.G, eru svo frábærar stundir enda elska ég að vera þar...endilega komið á U.NG....SJÁIÐ EKKI EFTIR ÞVÍ
Næstu helgi er MÓT uppí Koti svo mín er að fara á fimmtudaginn og kem heim á sunnudaginn....hlakka svo til að komast uppí Kot, það er svo æðislegt að vera þarna og koma "heim" enda hef ég farið þangað síðan ég fæddist ![]()
Jóhanna Systir 29 ára í dag

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Jóhanna,
hún á afmæli í dag.
Hún er 29 ára í dag,
hún er 29 ára í dag,
hún er 29 ára í dag. 
Til hamingju með afmælið Jóhanna mín![]()
Svo á Afi Steini líka afmæli í dag![]()
Sjáumst í dag í afmælinu hans afa!
Helgin...
Jæja 2 vikur frá seinasta bloggi mínu og komin tími á eitt slíkt![]()
Afmælið mitt var mjög fínt, allavega örðuvísi en seinustu 3 ár...hef nú vanalega haldið “partý” en var ekki að nenna því núna og var dagurinn bara mjög rólegur og notalegur þar sem ég fékk víst gubbupestina 2 á einni viku og í seinna skipti 2 dögum fyrir afmælið mitt svo ég var nú ennþá að drepast og var ekki að meika e-ð crazy í ár, bauð ömmum og öfum í mat heim ásamt systu og co...
Þessi helgi var nú mjög fín...skellti mér á tónleika uppí Kross á föstudaginn þar var GIG (GOSPEL INVASION GROUP ) að spila ásamt Jónsa ( svörtum fötum) tók hann nú nokkur góð lög með þeim, talaði nú smá um sitt "kristna" líf, kom manni mjög mikið á óvært!..Vá hvað þau eru góð, hef ekki heyrt í þeim í 2 ár eða síðan ég hætti í fíló og var það mjög skrítið e-ð að mæta og hitta alla e-ð aftur eftir langan tíma...svo eftir tónleikana var Hanna Lísa að halda uppá afmælið sitt og skellti ég mér þangað og var það ekkert smá mikið stuð, langt síðan að mar hefur flippað svona mikið...svo í gær fór ég með Hönnu Lísu og Birnu á samkomu uppí Kross og var það mjög skrítin upplifun sem ég fékk þar sem ég hef aldrei fundið fyrir áður...samkoman var nú mjög góð....svo í kvöld er planið að kíkja í Samhjálp með stelpunum á U.N.G....
Ákvaði nú að gefa þessu seins aftur þar sem djammið og það líf er nú ekki að gefa manni mikið...var hætt að langa að drekka og löngun í djammið bænum farin...
Takk allir fyrir helgina![]()
NÝJAR MYNDIR KOMNAR![]()
Bloggleysi!
Alltof langt síðan maður hefur bloggað e-ð inná þessa síðu...hef nú ekkert verið að sinna þessari síðu ca mánuð eða svo...já það er allt gott að frétta af mér
vinnan gengur vel...fíla mig nú mjög vel á Engjaborg
búin að kynnast nú flestum þar svo núna er nú aðeins skemmtilegra....ákvað að vera með í “kjólinn fyrir jólin” 3ja mánaða “keppni á milli okkar og hún vinnur sem nær mestum árangri og það er held ég 20 þúsund í verlaun! Vonandi á maður eftir að ná sér e-ð niður...langar nú að kaupa mér kort í ræktina “ reyna að mæta nú oftar og taka þetta núna” langar nú svo að koma mér í gott form![]()
Fór 1 sept. á Póstdjamm á Gaukinn með Lenu og Stellu...svaka stuð þar eins og við mátti búast...gaman að hitta alla aftur og djamma með liðinu.
Fótboltamót var haldið og unnu TNT 2 árið í röð, enda með hörkulið...svo tók nú Fyrirtækjapósthús og Bréfapóstur þátt svo það var nú erfitt að halda með báðum liðunum þar sem ég vann í báðum deildum![]()
Föstudaginn 21 sept var haldið “grillparty” eða sumarslútt í vinnunni og vorum við allar kellurnar saman komnar hjá einni af Deildarstjórunum sem býr nú bara rétt hjá leikskólanum...mín mætti nú aðeins seinna um kvöldið þar sem ég fór ekki í matinn en á meðan kíkti ég á samkomu í Fíló, úff frekar skrítið að koma þangað á samkomu eftir svona langan tíma...eða mjög erfitt! Var víst “stuðsamkoma” og Hafsteinn hafði samband og bauð mér á hana svo ég ákvað á láta verða að því að kíkja...
Mætti svo í partíð og voru nú stuðið að byrja, svaka stuð í spjallinu...held að ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi, hló og hló...og var nú edrú þetta kvöld og var driver! um 1 var haldið í bæinn...fórum nú nokkrar í bæinn eða ég, Nanný, Erna, Elísabet, Sigrún, Mæja, Hófý og Tinna og var byrjað á Deco þar sem Einar Ágúst og Júlli voru að spila, fílaði mig svo vel þar, enda svaka stuð alltaf hjá þeim vinum....fórum svo yfir á Hressó og var dansað til hálf 5...hitti þar líka Konna, Dabba og Sjonna...






